fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Endurútgáfa bókar um Reykjanes

Markmið verkefnis er að efla ímynd Reykjanessins meðal íbúa, Íslendinga og gesta.

Verkefnið miðar að endurútgáfu ljósmyndabókar um Reykjanesið sem endurspeglar fjölbreytta mynd af samfélagi og náttúru svæðisins.

Staðfærsla svæðisins eru einkunnarorð verkefnisins: Reykjanes er lífæð landsins þar sem ægifegurð fylgir þér við hvert fótmál.

Um er að ræða veglega bók um Reykjanes þar sem finna má fjölda ljósmynda af einstökum Reykjanesskaganum og tilvísanir í menningu og sögu þessa landshluta sem kalla má hliðið inn í landið.

Reykjanesið er UNESCO Global Geopark og því einstakt svæði á heimsvísu en þar rís Mið-Atlantshafshryggurinn úr sæ en á fáum stöðum í heiminum er hægt að skoða sprungumyndanir sem eru jafn lýsandi fyrir gliðnun milli jarðskorpufleka þar sem skiljast að Ameríka og Evrópa.

Í bókinni er ætlunin að tvinna saman náttúru og landslagi, menningu og fólki sem og nýsköpun og atvinnu til að gefa nokkra mynd af þessu samfélagi suður með sjó. Landslagið er eldbrunnið og hrjóstrugt við fyrstu sín og hefur því verið líkt við tunglið, gott ef æfingar fyrir tunglgönguna hafi ekki farið fram þar, en þegar betur er að gáð birtist ægifegurð skagans sem er einstök í hrikaleik sínum. Má þar nefna íðilgræna sprungugíga, mosaheiðar, hverasinfóníu og leiraugu þar sem orkan kraumar í iðrum jarðar enda er Reykjanesið háhitasvæði sem hefur séð Suðunesjamönnum ríkulega fyrir orku. Brimið á Reykjanesi er stórfenglegt þar sem Atlantshafsaldan skellur fyrst á landinu en þó er veðurfar á Reykjanesi með þeim mildari á landinu.

Bókin gefur tónlistararfi Suðurnesjamanna góð skil en þar eru birtir textar vinsælla dægurlaga allt frá 7. áratuginum og fram til dagsins í dag en þar má nefna Rúnar Júlíusson, Villa vill, Jóhann Helgason, Valdimar og Of Monsters and Men. Einnig eru birtir textar eftir þekkt skáld sem tengjast Reykjanesi á einn eða annan hátt og má þar nefna ljóðskáldið Stein Steinarr sem starfaði sem vitavörður á Reykjanesvita, elsta vita landsins, um nokkurt skeið, Hannes Sigfússon sem skrifaði bókina Strandið um einn mannskæðasta skipskaða sögunnar við Valahnuúk, Jón Kalman og Guðberg Bergsson auk þess sem segja má að þar hafi Hallgrímur Pétursson stigið fyrst fram á sviðið sem trúarskáld þegar hann orti um dóttur sína og hjó henni minningarstein á Hvalsnesi.

Ljósmyndirnar eru að mestu leyti teknar af Þránni Kolbeinssyni sem býr í Grindavík og hefur honum tekist að gefa okkur nýja sýn á Reykjanes. Þeim ætlað að gefa fjölbreytta mynd af samfélagi og náttúru sem á sér engan líka. Lögð var áhersla á að gefa mynd af samspili manns og náttúru og hvernig það samtal verður til hvort sem það er á brimbretti í öldunum út af Grindavík, sjósund við sólsetur á Garðskaga, kajak á Kleifarvatni eða dýfa í djúpan hyl á heitum sumardegi.

Um er að ræða metnaðarfullt bókverk sem kemur til með að nýtast til jákvæðrar ímyndasköpunar, styrkja staðaranda svæðisins á þessum tíma áskorana og nýjum veruleika sem miðar að því að vinna með þeim jarðhræringum sem eiga sér stað á svæðinu.

Heildarkostnaður verkefnis er kr. 12.000.000,- en framlag úr Sóknaráætlun Suðurnesja er kr. 9.000.000,-

Verktími er 2024.