fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Brautargengi í Reykjanesbæ

Námskeið fyrir konur sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd með nýju eða starfandi fyrirtæki.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur:

  • Skrifi viðskiptaáætlun
  • Kynnist grundvallaratriðum varðandi stofnun fyrirtækja
  • Öðlist hagnýta þekkingu á þeim þáttum sem koma að fyrirtækjarekstri, s.s. stefnumótun, markaðsmálum, fjámálum og stjórnun

Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum, verkefnavinnu og persónulegri handleiðslu og hentar jafnt konum sem eru að hefja rekstur og konum sem reka nú þegar fyrirtæki.

Umsóknarfrestur er til 27.janúar n.k.

Kennsla hefst í byrjun febrúar 2011.

Nánari upplýsingar og skráning á vefsíðu Impru á Nýsköpunarmiðstöð, www.nmi.is/impra eða hjá Selmu Dögg Sigurjónsdóttur verkefnisstjóra í síma 522-9434, selma@nmi.is.