LÓA nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina - Umsóknarfrestur er til og með 27. mars 2023 SSS
#

Fréttir

Eldey

LÓA nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina – Umsóknarfrestur er til og með 27. mars 2023

Prenta

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Lóu. Lóa eru nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina sem hafa það hlutverk að styðja við eflingu byggða og landshluta með nýskapandi verkefnum. Styrkjunum er aðeins úthlutað til verkefna utan höfuðborgarsvæðisins í þeim tilgangi að styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni.

Í ár er sérstök áhersla lögð á stuðning við verkefni sem komin eru af byrjunarstigi og hafa t.d. fengið stuðning úr uppbyggingarsjóðum eða öðrum sambærilegum sjóðum. Þá verður m.a. litið til þess að verkefnin hafi það að markmiði að efla stuðningsumhverfi nýsköpunar og hvort þau feli í sér nýsköpun sem stuðlar að sjálfbærni, t.d. í heilbrigðis- og menntamálum og matvælaframleiðslu.

Frekari upplýsingar og umsóknarform er að finna inn á vef stjórnarráðsins og inn á w w w .h v i n . i s
Upplýsingar veitir: Lóa Auðunsdóttir, [email protected]

Lóa