fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Styrkir úr Æskulýðssjóði – opið fyrir umsóknir

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði. Hlutverk  sjóðsins er að styrkja verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka. Einkum er horft til verkefna sem eru unnin fyrir börn og ungmenn og / eða með virkri þátttöku þeirra, þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða, nýjungar og þróunarverkefni og samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.

Allir þeir sem eru í forsvari fyrir æskulýðsfélög og æskulýðssamtök geta sótt um.

Ekki er gert ráð fyrir að hefðbundin íþróttafélög né opinberir aðilar eins og félagsmiðstöðvar sæki um verkefni í þennan sjóð.

Umsóknarfrestur:

Þrisvar sinnum á ári; 15. mars, 15. júní og 15. október.

Næsti umsóknarfrestur er 15. júní 2016. Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

Sjá frekari  upplýsingar um Æskulýðssjóð má finna hér og hvernig sótt er um.