fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Skráning á húsnæði fyrir Grindvíkinga

Rauði krossinn hefur sett á vefinn skráningarblað sem ætlað er þeim sem geta lánað húsnæði til þeirra Grindvíkinga sem enn eru ekki komnir í húsaskjól.

Í skráningarblaðinu þarf að gefa upp:

  • staðsetningu húsnæðis
  • tegund húsnæðis
  • fjölda rúma og
  • hversu lengi húsnæðið stendur til boða

Samband íslenskra sveitarfélaga hvetur landsmenn til að skrá mögulegt húsnæði hjá Rauða krossinum, það einfaldar mjög utanumhald en fjölmörg hafa nú þegar boðið húsnæði á samfélagsmiðlum.

Farið verður yfir boð um húsnæði og haft samband við tengilið ef af verður. Ekki er víst að haft verði samband við alla.