Vilt þú hafa áhrif?
Vinna er hafin við gerð nýrrar Sóknaráætlunar Suðurnesja sem mun taka gildi um áramót, en gildandi áætlun rennur út árið 2024.
Vinnustofur
Opnað hefur verið fyrir skráningu á vinnustofur, sem haldnar verða í öllum sveitarfélögum og eru allir íbúar velkomnir.
Á vinnustofunum verður fjallað um helstu áherslur og markmið á Suðurnesjum 2025-2030 og safnað saman verkefnahugmyndum.
Nánari dagsetningar verða kynntar á næstunni.