Flæði framtíðar
-
Dagsetning
15. nóvember, 2024
-
Tími
14:00 - 17:00
Ráðstefna um nýsköpun, gervigreind og sjálfvirkni verður haldin á Suðurnesjum þann 15. nóvember undir yfirskriftinni Flæði framtíðar.
Á ráðstefnunni sem haldin verður í hátíðarsal Fjölbrautaskóla Suðurnesja verður fjallað um nýsköpunarumhverfið og framfarir sem orðið hafa í tækni. Þar verður m.a. rætt um gervigreind, sjálfvirkni og mikilvægi menntunar til að móta framtíðina.
Dagsrá ráðstefnunnar verður nánar auglýst þegar nær dregur.