Jákvæð samskipti og starfsmannahald við krefjandi aðstæður
-
Dagsetning
30. apríl, 2025
-
Tími
09:00 - 10:30
Markaðsstofa Reykjaness í samstarfi við Hæfnisetur ferðaþjónustunnar, Samtök ferðaþjónustunnar og MSS bjóða til morgunverðarfundar í Krossmóa í Reykjanesbæ þann 30. apríl næstkomandi kl. 9:00 – 10:30.
Á fundinn fáum við góða gesti og innlegg meðal annars frá Bláa lóninu um áskoranir í starfsmannahaldi á umbrotatímum og árangur menningarvegferðarinnar hjá ISAVIA.
Dagskrá fundarins verður kynnt betur í næstu viku og eins verður þá hægt að skrá sig á fundinn. Beint streymi verður frá fundinum fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.
Endilega takið tímann frá.