fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Menningarauðlind ferðaþjónustunnr

Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) stendur að ráðstefnunni Menningarauðlind ferðaþjónustunnar, ráðstefnu um menningarferðaþjónustu og nýja ferðamálastefnu til 2030 þann 14. maí í Hofi, Akureyri. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) og hlaut verkefnið styrk úr Hvata, sjóði menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Einnig koma að ráðstefnunni fjöldi aðila úr menningargeiranum og ferðaþjónustunni.

Markmiðið með ráðstefnunni er að skoða samspil og hlutverk menningar í ferðaþjónustu. Ennfremur er ráðstefnunni ætlað að skoða hvernig efla má gagnasöfn og rannsóknavirkni sem stuðlað getur að þróun og framförum á sviði menningarferðaþjónustu.

Á ráðstefnunni gefst gestum kostur á að heyra margvíslegar dæmisögur um vel heppnaða menningarferðaþjónustu og fræðileg erindi um rannsóknir á þessu sviði. Allir þátttakendur geta tekið þátt í hópavinnu um fjögur þemu sem verður nýtt í að þróa rannsóknastefnu RSG á sviði menningarferðaþjónustu. Þemun eru: Samstarf og klasahugsun, Markaðs- og kynningarmál, Vöruþróun og fjárfestingar, Gagnasöfn og rannsóknaáætlun.

Viðburðinum verður streymt en gert verður hlé á streyminu meðan á hópavinnu stendur.

Ráðstefnustjóri er Sigríður Örvarsdóttir, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri

Dagskrá

09:00 Ávarp – fulltrúi menningarmálaráðherra

09:10 Menningarferðaþjónusta í ferðamálastefnu
– Svanhildur Konráðsdóttir, formaður starfshóps um menningarferðaþjónustu í mótun ferðamálastefnu og forstjóri Hörpu

09:20 Dæmisögur af menningarferðaþjónustu

Landnámssetrið í Borgarnesi
– Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, forstöðumaður Landnámssetursins

Galdrasýning á Ströndum
– Jón Jónsson, þjóðfræðingur

1238 Baráttan um Ísland
– Freyja Rut Emilsdóttir, framkvæmdastjóri

Bræðslan: Geta viðburðir styrkt brothættar byggðir?
– Áskell Heiðar Ásgeirsson, lektor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum

Þórbergssetur
– Þorbjörg Arnórsdóttir, forstöðumaður Þórbergsseturs

Lava Show
– Ragnhildur Ágústsdóttir LadyLava, stofnandi LavaShow

10:30 Kaffihlé

10:45 Áfangastaðir – sögur, söfn og frumkvöðlastarf

Rannsóknir og þróunarverkefni

Vistkerfi menningararfs og ferðaþjónustu: Frásagnir og skapandi ferli til eflingar samfélaga og byggða
Katrín Anna Lund, prófessor í ferðamálafræði við Háskóla Íslands

Sameiginleg hagsmunamál safna og ferðaþjónustu á Íslandi
Guðrún Dröfn Whitehead, lektor í safnafræði

Óáþreifanlegur menningararfur: Þróun og sjálfbærni
Ingibjörg Benediktsdóttir, verkefnastjóri hjá Þekkingarneti Þingeyinga

Túrismi, trauma og tækni til miðlunar
Sigurjón Hafsteinsson, prófessor við Háskóla Íslands

11:45 Stuttar umræður

12:00 Hádegisverður

13:00 Hópavinna

Samstarf og klasahugsun

Markaðs- og kynningarmál

Vöruþróun og fjárfestingar

Gagnasöfn og rannsóknaáætlun

14:30 Kaffihlé

14:50 Kynningar og umræður á hópastarfi

15:50 Lokaorð – fulltrúi atvinnuvegaráðherra

16:00 Ráðstefnu slitið

Vinsamlegast skráið mætingu ýmist á staðinn eða í streymi hér. Skráningu lýkur kl. 12 mánudaginn 5. maí.