fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Opið kall hjá Norðurslóðaáætluninni

Athygli er vakin á því að opið er fyrir umsóknir hjá Norðurslóðaáætluninni en um er að ræða fimmta kallið á áætlunartímabilinu og það síðasta þar sem opið verður fyrir umsóknir á öllum þremur áherslusviðum áætlunarinnar. Umsóknarfrestur er til kl. 10:00 mánudaginn 30. september.

Til kynningar á áætluninni og til að auðvelda umsækjendum vinnuna er hér bent á heimasíðu hennar og sérstaka síðu fyrir gerð umsókna ásamt stuttum kynningarmyndböndum og almennri notendahandbók Programme Manual og notendahandbók rafræna umsóknarkerfisins JEMS user manual.

Allar frekari upplýsingar veitir landstengiliður áætlunarinnar, Reinhard Reynisson á netfanginu reinhard@byggdastofnun.is

Norðurslóðaáætlunin (Northern Periphery and Arctic Programme) er samstarfsvettvangur Evrópusambandsríkjanna Írlands, Svíþjóðar og Finnlands og svo Noregs, Íslands, Grænlands og Færeyja. Markmið áætlunarinnar er að stuðla að samstarfsverkefnum milli landanna sem miða að því að finna lausnir á sameiginlegum áskorunum á sviði atvinnu- og byggðaþróunar og er núgildandi áætlunartímabil 2021-2027.