Ráðgjöf til fyrirtækja í Grindavík
-
Dagsetning
31. júlí, 2025
-
Tími
13:00 - 15:00
Ráðgjafar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum verða með opin viðtalstíma á bæjarskrifstofunum fyrir þau fyrirtæki sem hyggjast sækja um styrk í viðbótarúthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja.
Hægt er að mæta í spjall og kaffi frá kl. 13 – 15:00 þar sem farið verður yfir mótun umsókna, verkþætti og fjárhagsáætlun.
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á verkefnastjóra Uppbyggingarsjóðs logi@sss, verkefnastjóra atvinnuþróunar og nýsköpunar dagny@heklan.is og verkefnastjóra Markaðsstofu Reykjaness thura@visitreykjanes.is