fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Samtal um skapandi greinar


Samtal um skapandi greinar
 hefur göngu sína að nýju fimmtudaginn 4. september. Samtalsröðin er haldin í samstarfi við CCP og fer fram kl. 8.30-10 í höfuðstöðvum CCP í Grósku, 3. hæð, að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík. Viðburðurinn fer fram á ensku að þessu sinni og erindum verður streymt af Facebook-síðu viðburðarins. Frummælendur eru:

Hilmar Smári Finsen, markaðssérfræðingur hjá CCP og fyrrum leikjagagnrýnandi

Sigríður Jónsdóttir, leikhúsgagnrýnandi og sérfræðingur við Leikminjasafn Íslands

Eliza Reid, rithöfundur

HÉR má nálgast nánari upplýsingar um erindin og skráningarhlekk. Athugið að sætaframboð er takmarkað. CCP býður fundargestum upp á kaffi og léttan morgunverð.

Hlökkum til að sjá ykkur á fimmtudagsmorgun í næstu viku!