Vegagerð í skugga eldsumbrota
-
Dagsetning
20. mars, 2025
-
Tími
09:00
Vegagerðin stendur fyrir áhugaverðum morgunfundi þar sem vegagerð í skugga eldsumbrota er til umfjöllunar. Hvernig er lagður vegur yfir nýrunnið hraun? Hvernig er hægt að reka vegi á eldgosasvæði? Þessum spurningum og fleiri til verður svarað á morgunfundinum. Allir velkomnir og það verður heitt á könnunni. Fundurinn verður einnig í beinu streymi.
Dagskráin:
Vegagerð og varnargarðar – Sigurþór Guðmundsson, verkefnastjóri á mannvirkjasviði hjá Vegagerðinni.
Hvernig er nýr vegur lagður yfir nýrunnið hraun? Jón Haukur Steingrímsson, jarðverkfræðingur hjá Eflu.
Rekstur á vegum á eldgosasvæði – Valgarður Guðmundsson, sérfræðingur á þjónustudeild hjá Vegagerðinni.
Kortlagning sprungna í Grindavík – Friðrik Halldórsson, rannsóknarmaður á stoðdeild hjá Vegagerðinni.
Framtíðarsýn – Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, og Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustusviðs Vegagerðarinnar.
Umræður.
Hér má finna hlekk á streymið: