fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Ert þú með góða hugmynd?

Boðað er til kynningarfundar um styrki til atvinnumála kvenna sem nú eru lausir til umsóknar fimmtudaginn 11. febrúar kl. 11:00.
Að fundinum standa Vinnumálastofnun og atvinnuþróunarfélög landshluta en umsóknarfrestur er til 1. mars n.k. Að þessu sinni eru frumkvöðlakonur á landsbyggðinni og konur í atvinnuleit hvattar til þess að sækja um.

Fundurinn verður haldinn á zoom og ATH að skrá þarf þátttöku hér

Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.

  • Verkefnið sé í meirihluta eigu konu/kvenna (51%) og stjórnað af konu.
  • Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.
  • Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar.
  • Viðskiptahugmynd sé vel útfærð.
  • Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (600.000), ásamt styrkjum til markaðssetningar og vöruþróunar að hámarki 4.000.000

Styrkir eru veittir fyrir helmingi af heildarkostnaði verkefna.

Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 40.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 4.000.000.

Sótt er um á vefnum  www.atvinnumalkvenna.is
Á heimasíðu verkefnisins má finna nánari upplýsingar um reglur og skilyrði sem þarf að uppfylla auk þess sem starfsmaður gefur nánari upplýsingar. asdis.gudmundsdottir@vmst.is

ATH að skrá þarf þátttöku á fundinn