fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Regenerate

REGENERATE – Nærandi ferðaþjónusta fyrir náttúru, samfélög og sjálfbæra framtíð

REGENERATE er alþjóðlegt samstarfsverkefni styrkt af Interreg Northern Periphery and Arctic (NPA) áætluninni. Verkefnið sameinar samstarfsaðila frá Íslandi, Finnlandi, Svíþjóð og Írlandi með það að markmiði að þróa og innleiða nálgun nærandi ferðaþjónustu sem styður við náttúru, samfélög og staðbundna verðmætasköpun.

Verkefnið byggir á þeirri sýn að ferðaþjónusta eigi ekki eingöngu að draga úr neikvæðum áhrifum heldur einnig að skila jákvæðum áhrifum til þeirra staða sem heimsóttir eru. Með því að styrkja tengsl ferðaþjónustu við náttúruvernd, menningararf, samfélagsþróun og staðbundið atvinnulíf getur nærandi ferðaþjónusta stuðlað að aukinni seiglu samfélaga og sjálfbærri þróun til framtíðar.

Á Reykjanesi er verkefnið unnið undir forystu Markaðsstofu Reykjaness í samstarfi við Reykjanes UNESCO Global Geopark, GeoCamp Iceland og hagaðila á svæðinu. Verkefnið styður við áframhaldandi þróun Reykjaness sem áfangastaðar þar sem náttúra, menning og samfélag njóta góðs af ferðaþjónustu og þar sem gestir geta lagt sitt af mörkum til jákvæðrar þróunar svæðisins.

Helstu verkefni REGENERATE fela í sér:

  • Kortlagningu og greiningu á stöðu ferðaþjónustu á svæðunum.
  • Söfnun og miðlun góðra fyrirmynda í nærandi ferðaþjónustu.
  • Þróun fræðsluefnis, verkfæra og leiðbeininga fyrir ferðaþjónustuaðila.
  • Uppbyggingu svæðisbundinna samstarfsvettvanga (Regenerative Travel Hubs).
  • Mótun stefnu og aðgerða sem styðja við nærandi þróun áfangastaða.

Verkefnið byggir á samstarfi áfangastaða, sveitarfélaga, fyrirtækja, mennta- og rannsóknastofnana og samfélaga. Niðurstöðurnar munu nýtast bæði á Reykjanesi og öðrum svæðum á Norðurslóðum sem vilja þróa ferðaþjónustu sem skilar jákvæðum áhrifum fyrir fólk og staði.

Verkefnið stendur yfir á árunum 2025–2028 og er styrkt af Interreg Northern Periphery and Arctic áætlun Evrópusambandsins.