fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

571. fundur SSS 30. apríl 2007

 Árið 2007, er fundur haldinn í  stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum mánudaginn 30. apríl kl. 17.30 á Fitjum.

Mætt eru:  Steinþór Jónsson, Óskar Gunnarsson, Oddný Harðardóttir, Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, Birgir Örn Ólafsson, Guðjón Guðmundsson framkv.stj. og Jóhanna M. Einarsdóttir fundarritari.

Dagskrá:

1. Samningur um samstarf ríkis og sveitarfélaga á Suðurnesjum um menningarmál.
a) Samstarfssamningur milli sveitarfélaganna.
b) Menningarsamningur við ríkið.
Stjórn SSS vísar samstarfssamningi milli sveitarfélaganna og menningarsamningi við ríkið til afgreiðslu sveitarfélaganna.

2. Bréf dags. 26. apríl ´07 frá Félagsmálaráðuneytinu þar sem óskað er eftir tilnefningu eins fulltrúa í svæðisbundið vinnumarkaðsráð.  Tilnefningu frestað.

3. Sameiginleg mál.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.30