fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Aðstoð við markaðssetningu

Markaðsstofa Reykjaness býður samstarfsfyrirtækjum að taka þátt í þróunar- og markaðsstarfi fyrir Reykjanes.

Samstarfsfyrirtæki eru virkur aðili í:

  • mótun og þróun ferðamála í landshlutanum
  • markaðssetningu áfangastaðarins.

Með samstarfi fær fyrirtækið m.a.: 

  • aðgang að markaðs- og kynningarefni fyrir svæðið.
  • aukinn sýnileika í markaðs- og kynningarefni áfangastaðarins. s.s. visitreykjanes.is.
  • tækifæri til að taka þátt í markaðsátaki fyrir svæðið, blaðamannaferðum og FAM-kynnisferðum.
  • tækifæri til að taka þátt í Mannamóti Markaðstofa landshlutanna

Aðilar að Markaðsstofu Reykjaness eru allir með tilskilin leyfi til atvinnurekstrar og taka þátt í að móta og þróa Reykjanesið sem vænlegan áfangastað fyrir gesti.

Gjaldskrá má nálgast hér.

Það er einfalt að gerast samstarfsaðili. Skráðu þig hér eða hafðu samband í síma 420 3288 eða sendu okkur fyrirspurn á info@visitreykjanes.is og við höfum samband við þig.