fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Áfangastaðaáætlun Reykjaness

Áfangastaðaáætlun Reykjaness er unnin samkvæmt stefnu stjórnvalda um þróun ferðamála á landsvísu.

Ferðamálastofa og Stjórnstöð ferðamála hafa frá árinu 2016 leitt vinnu við gerð áfangastaðaáætlana fyrir alla landshluta – DMP (e. Destination Management Plans) í samvinnu við markaðsstofur landshlutanna sem fara með verkefnisstjórn áætlanagerðarinnar á sínum svæðum. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um verkefnið á vef Ferðamálastofu.

Markaðsstofa Reykjaness hefur unnið áfangastaðaáætlun fyrir áfangastaðinn Reykjanes í samstarfi við Reykjanes Geopark og hagaðila á svæðinu.

Áfangastaðaáætluninni er ætlað að vera leiðandi verkfæri í framtíðarþróun ferðaþjónustu á svæðinu. Mikilvægt er að endurskoða kafla hennar reglulega með tilliti til breyttra forsenda og breytinga í umhverfi ferðaþjónustu og stjórnsýslu svæðisins. Stefnt er að upptöku og endurskoðun á áfangastaðaáætluninni veturinn 2019-2020 í samstarfi við sveitarfélög á svæðinu.

Áfangastaðaáætlun Reykjaness nær yfir sveitarfélögin fjögur á Suðurnesjum; Reykjanesbæ, Grindavíkurbæ, Suðurnesjabæ og Voga. Við gerð áætlunarinnar verður unnið út frá þeim áætlunum og stefnum í umhverfis-, ferða-, menningar-, og markaðsmálum sem fyrir liggja hjá sveitarfélögunum og sameiginlegum verkefnum svæðisins.

Verkefnastjóri
Þuríður Halldóra Aradóttir Braun
thura@thura

Áfangastaðaáætlun Reykjaness