816. fundur stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
Árið 2025, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum miðvikudaginn 8. október, kl. 8:00 í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.
Mætt eru: Ásrún Helga Kristinsdóttir, Björn Sæbjörnsson, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Jónína Magnúsdóttir og Berglind Kristinsdóttir sem jafnframt ritaði fundargerð.
Björn G. Sæbjörnsson setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn.
Dagskrá:
- Stjórn skiptir með sér verkum
Formaður: Jónína Magnúsdóttir, Suðurnesjabæ
Varaform.: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Reykjanesbær
Ritari: Ásrún H. Kristinsdóttir, Grindavíkurbær
Meðstj: Björn G. Sæbjörnsson, Sveitarfélagið Vogar. - Ályktanir aðalfundar 2025.
Ályktanir aðalfundar 2025 lagðar fram. Stjórn fer yfir ályktanir og felur framkvæmdastjóra að uppfæra og senda út til hlutaðeigandi ráðuneyta sem og þingmanna kjördæmisins.
Framkvæmdastjóri hefur með heimild stjórnar S.S.S., leitað eftir áliti lögfræðisviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi atkvæðagreiðslu um breytingu á samþykktum Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum sem átti sér stað á aðalfundi S.S.S. sem haldinn var laugardaginn 4.okt.
- Bréf dags. 09.09.2025 frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja – gestur Ásmundur Þorkelsson.
Ásmundur Þorkelsson framkvæmdastjóri HES fór yfir fyrirhugaðar breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum.
Í málatilbúnaði ráðherra er lögð áhersla á að þarna sé eina leiðin til að verjast málarekstri EFTA. Vegna þessa telur HES fulla ástæðu til að draga fram að ESA telur afnám heilbrigðiseftirlits í núverandi mynd óþarft til að mæta sínum athugasemdum.
Fram kom í erindi Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja að þau telji ástæðu til að gjalda varhug við áformum um miðstýringu og ríkisvæðingu á eftirliti með matvælum, hollustuháttum og mengunarvörnum. Boðaðar breytingar gangi of langt, eru kostnaðarsamar og ná megi betri árangri með umbótum á núverandi kerfi.
Stjórn S.S.S. tekur undir umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.
- Frumvarp til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011.
Lagt fram. Kjörnir fulltrúar eru hvattir til að kynna sér breytingarnar í samráðsgátt stjórnvalda en hægt er að finna greinagóðar upplýsingar á þeim lagagreinum sem lagt er til að breyta.
https://samradapi.island.is/api/Documents/4e356445-5f98-f011-9bcf-005056bcce7e - Tölvupóstur dags. 18.09.2025, frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Lagt fram. Stjórn S.S.S. þakkar fyrir skýrsluna og fagnar frekari samstarfi. - Tölvupóstur dags. 19.09.2025 frá Fisktækiskóla Íslands, aðalfundarboð og dagskrá aðalfundar.
Aðalfundur Fisktækniskóla Íslands verður haldinn í húsnæði skólans Sólheimum 5, 245 Suðurnesjabæ, þann 15. október kl. 16:15.
Stjórn S.S.S. tilnefnir eftirfarandi í stjórn skólans:
Aðalmaður: Baldur Matthías Þóroddsson.
Varamaður: Jónína Magnúsdóttir.
- Önnur mál.
Varaformaður stjórnar fer á fund sveitarstjórnarvettvangs í Brussel í nóvember.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:31.
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Jónína Magnúsdóttir Björn Sæbjörnsson
Ásrún H. Kristinsdóttir Berglind Kristinsdóttir