Skemmtiferðaskip á Reykjanesi
Sóknaráætlun 2025-2027

Markmið verkefnisins er að þróa og styrkja Reykjanes sem sjálfbæran og nærandi áfangastað fyrir skemmtiferðaskip, þar sem ávinningur skilar sér til samfélagsins, íbúa og umhverfis. Verkefnið byggir á sjálfbærni, samfélagslegri þátttöku og upplifun gesta í sátt við náttúruna og nærumhverfið.
Verkefnið miðar að því að auka gæði og sjálfbærni móttöku skemmtiferðaskipa á Reykjanesi með fjórum lykiláherslum:
1. Fræðsla og þátttaka samfélagsins í nærandi ferðaþjónustu
- Kynning og fræðsla fyrir íbúa, sérstaklega í Grindavík, til að virkja þá sem sögufólk og leiðsögumenn í sínu nærumhverfi.
- Þróun námskeiða og fræðsluefnis sem styður við sjálfbæra ferðaþjónustu, með áherslu á náttúruvernd, menningu og samfélagsþátttöku.
- Samstarf við skóla, fræðslustofnanir og ferðaþjónustuaðila um þjálfun og færniuppbyggingu íbúa til að skapa tækifæri og virðisauka innan samfélagsins.
2. Bætt upplifun skipagesta og sjálfbær þróun hafna
- Uppbygging og merking gönguleiða frá höfnunum í Keflavík og Grindavík til bæjarkjarna með áherslu á náttúrutengda upplifun og menningarlega skírskotun.
- Þróun áningastaða sem byggja á hugmyndafræði nærandi ferðaþjónustu; t.d. með fræðslu um jarðfræði, menningu og náttúruvernd.
- Samstarf við sveitarfélög, landeigendur og ferðaþjónustuaðila til að bæta aðgengi og dreifa ferðamönnum á svæðið með sjálfbærni að leiðarljósi.
3. Markviss kynning og stefnumótun fyrir sjálfbæra áfangastaðastjórnun
- Þróun markaðsefnis og stefnumótun sem leggur áherslu á Reykjanes sem fyrirmyndar áfangastað fyrir leiðangursskip og smærri skemmtiferðaskip sem vilja upplifa einstaka náttúru og menningu á sjálfbæran hátt.
- Bein samskipti við skipafélög og samstarfsaðila innan ferðaþjónustu til að kynna möguleika áfangastaðarins og efla sjálfbæra skipakomur.
- Skipulagning heimsókna fyrir skipafélög og ferðaþjónustuaðila með áherslu á að bæta skilning á sérstöðu svæðisins.
- Markaðsátak sem felur í sér vinnustofur, sýningar og stefnumótun í samvinnu við aðra áfangastaði á Norðurslóðum.
4. Samstarf við Norðurslóðaráfangastaði til að efla sjálfbæra ferðaþjónustu
- Stofnun samstarfsnets áfangastaða sem taka á móti smærri skemmtiferðaskipum á Norðurslóðum til að miðla þekkingu, læra hvert af öðru og efla gæði móttöku skipagesta.
- Rannsóknir og stefnumótun fyrir sjálfbæra ferðaþjónustu með áherslu á vistspor skemmtiferðaskipa og samfélagsleg áhrif þeirra.
- Þróun sameiginlegra staðla og verklags sem stuðla að verndun náttúru, eflingu staðbundinnar ferðaþjónustu og uppbyggingu innviða með sjálfbærni að leiðarljósi. Tengsl við nærandi ferðaþjónustu (Regenerative Tourism)
Verkefnið fellur undir nálgun nærandi ferðaþjónustu sem leggur áherslu á að:
- Ferðaþjónusta skili samfélaginu virðisauka og stuðli að eflingu staðbundins atvinnulífs.
- Ferðamenn fái dýpri tengingu við áfangastaðinn með þátttöku í fræðslu, menningu og náttúruupplifun.
- Uppbygging innviða og vöruþróun sé gerð með langtímasjónarmið í huga og í sátt við náttúru og íbúa.
Ferðaþjónusta styðji við menningu og arfleifð svæðisins í stað þess að raska henni.