58. fundur Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja
58. fundur Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja haldinn fimmtudaginn 21. maí 2026, kl. 16:00. Fundurinn er haldinn í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.
Forföll boðuðu: Lilja Sigmarsdóttir og Björn Ingi Edvardsson.
Eysteinn Eyjólfsson formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.
Dagskrá:
- Bréf dagsett 19.05.2026 frá Skipulagsstofnun.
Í bréfi Skipulagsstofnunar kemur frá ábendingar um tvö atriði sem þarf að uppfæra en þau eru eftirfarandi:
- Á skipulagsuppdrætti fyrir vatnsvernd þarf að gefa hverju og einu vatnsbóli og verndarsvæði þeirra viðeigandi auðkenni og fjalla um svæðin í greinargerð, eftir atvikum með sértækum ákvæðum ef við á. Samsvarandi auðkenni og ákvæði verði einnig sett fram í stafrænum gögnum.
- Minnt er á að nákvæmni stafrænna gagna miðast við mælikvarða þess skipulagsuppdráttar sem hún er sett fram á.
Einnig kemur fram í bréfi Skipulagsstofnunar að HMS muni staðfesta svæðisskipulagið þegar borist hafa lagfærð skipulagsgögn, þ.m.t. stafræn gögn ásamt útprentuðum gögnum til undirritunar.
Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja staðfestir endanlega útgáfu svæðisskipulags Suðurnesja með þeim breytingum sem gerðar hafa verið í samræmi við ábendingar Skipulagsstofnunar og samþykkir að undirrituð gögn verði send HMS til endanlegrar staðfestingar.
- 2. Önnur mál.
Ekki fleiri mál færð til bókar og fundi slitið kl. 16:35.