824. fundur stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
Árið 2026, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum miðvikudaginn 10. júní, kl. 8:00 í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.
Mætt eru: Jónína Magnúsdóttir, Björn Sæbjörnsson, Ásrún Kristinsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Berglind Kristinsdóttir sem jafnframt ritaði fundargerð.
Jónína Magnúsdóttir formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn.
Dagskrá:
- Vinnustofa um græna iðngarða og fjárfestingartækifæri á Íslandi- kynning á niðurstöðu.
Lagt fram til kynningar. - Ársskýrsla Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2025.
Lagt fram til kynningar. - Undirbúningur aðalfundar 2026.
Fundurinn verður haldinn í Gerðaskóla þann 12. september. Stjórninn ræddi hugmyndir að dagskrá. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram á milli funda. - Önnur mál.
Halldóra Fríða sagði frá ferð sinni til Brussel í byrjun mánaðar á fund sveitarstjórnar vettvang EFTA. Tilefni hans var m.a. löggjöf ESB varðandi opinber innkaup, svo kallað „Buy European” sem er mikið í umræðunni um þessar mundir og EU Arctic Strategy, sem hefur fengið meira vægi í tengslum við aukinn áhuga á norðurslóðum sem og loftlagsmál.
Einnig var farið stuttlega yfir fráveitutilskipunina.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:20.
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir
Jónína Magnúsdóttir
Ásrún Kristinsdóttir
Björn Sæbjörnsson
Berglind Kristinsdóttir