Panta tíma í ráðgjöf
Ráðgjöf Heklunar
Heklan sinnir ráðgjöf á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarmála til einstaklinga, fyrirtækja og sveitarfélaga á Suðurnesjum.
- Ráðgjöf við rekstraráætlanagerð
- Upplýsingar um mögulega styrki í boði
- Leiðbeiningar við stofnun á fyrirtæki
- Ráðgjöf við markaðssetningu
- Leiðbeiningar við lánsumsóknir hjá Byggðastofnun
- Ráðgjöf um fjárfestingar og fjármögnun
Hægt er að panta tíma í ráðgjöf á netfangið heklan@heklan.is eða í forminu hér.
Panta tíma í ráðgjöf
Gjaldtaka
Ráðgjöfin er gjaldfrjáls fyrstu 10 tímana en eftir það er tekið tímagjald. Regla þessi er byggð á samkeppnissjónarmiðum.
Trúnaður
Ráðgjafar eru bundnir trúnaði um þau verkefni sem veitt er ráðgjöf um.