fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

S T J Ó R N A R F U N D U R

826. fundur

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum

DAGSETNINGMiðvikudagurinn 9. september 2026
TÍMIKl. 8:00 – 9:00
STAÐURFundarsalur SSS, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbær
FUNDARRITARIBerglind Kristinsdóttir

Fundarsetning

Árið 2026, miðvikudaginn 9. september kl. 8:00, var haldinn fundur í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum í fundarsal sambandsins, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.

Jónína Magnúsdóttir, formaður, setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn.

Mætt á fundinn

Jónína Magnúsdóttir, Björn Sæbjörnsson, Ásrún Kristinsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Berglind Kristinsdóttir, sem jafnframt ritaði fundargerð.

Dagskrá

  1. Aðalfundur S.S.S. 2026.

Lögð var lokahönd á dagskrá fundarins. Stjórn S.S.S. samþykkir að tilnefna Deloitte sem endurskoðanda Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum til tveggja ára. Einnig mun stjórn leggja til óbreytta prósentuþóknun í stjórnarlaun á næsta starfsári.

2. Slit á kennitölu Markaðsstofu Reykjaness.
Á 825. fundi stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum var ársreikningur Markaðsstofu Reykjaness fyrir árið 2025 lagður fram og framkvæmdastjóra falið að halda áfram vinnu við uppgjör viðskiptastöðu og slitaferli stofnunarinnar.

Frá 1. janúar 2026 hefur öll starfsemi sem áður tilheyrði Markaðsstofu Reykjaness verið færð undir starfsemi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, deild 90. Markaðsstofa Reykjaness hefur því ekki verið með sjálfstæðan rekstur frá þeim tíma.

Lagt er til að eftirfarandi lokaskref verði tekin vegna slita Markaðsstofu Reykjaness:

  • Lok rekstrar Markaðsstofu Reykjaness miðist við 31. desember 2025.
  • Endurskoðanda verði falið að ganga frá lokastöðu/slitauppgjöri Markaðsstofu Reykjaness miðað við 31. desember 2025 og gera grein fyrir endanlegu uppgjöri eigna, skulda og viðskiptastöðu stofnunarinnar.
  • Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum taki að sér að gera upp þá neikvæðu fjárhagslegu stöðu sem fram kemur í lokauppgjöri Markaðsstofu Reykjaness og þær skuldbindingar sem henni tengjast. Endanleg bókhaldsleg meðferð uppgjörsins verði ákveðin í samráði við endurskoðanda.
  • Að loknu slitauppgjöri verði send formleg beiðni til Sýslumannsins á Vestfjörðum um niðurlagningu Markaðsstofu Reykjaness ásamt nauðsynlegum fylgigögnum.
  • Að fenginni staðfestingu á niðurlagningu verði gengið frá afskráningu Markaðsstofu Reykjaness og öðrum þeim formsatriðum sem eftir standa vegna slita stofnunarinnar.

Stjórn samþykkir að lok rekstrar Markaðsstofu Reykjaness miðist við 31. desember 2025 og felur framkvæmdastjóra, í samráði við endurskoðanda, að ganga frá lokastöðu/slitauppgjöri stofnunarinnar miðað við þann dag.

Stjórn samþykkir jafnframt að Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum taki að sér að gera upp neikvæða fjárhagslega stöðu Markaðsstofu Reykjaness og þær skuldbindingar sem henni tengjast samkvæmt endanlegu slitauppgjöri.

Framkvæmdastjóra er falið að annast önnur nauðsynleg lokaskref vegna formlegra slita Markaðsstofu Reykjaness, þar á meðal að senda beiðni um niðurlagningu stofnunarinnar til Sýslumannsins á Vestfjörðum og ganga frá afskráningu hennar að loknu slitaferli.

3. Bréf frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands, dags. 10.09.2025.
Lagt fram.

4. Bréf frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands, dags. 27.08.2026.
Lagt fram.

5. Aðalfundarboð Fisktækniskóla Íslands, tölvupóstur dags. 27.08.2026.
Aðalfundur Fisktækniskóla Íslands verður haldinn þann 14. september kl. 16:15 í húsnæði skólans að Suðurhóp 2, Grindavík. Stjórn S.S.S. tilnefnir eftirfarandi í stjórn skólans 2026-2030.

Aðalmaður: Andri Rúnar Sigurðsson (Sveitarfélagið Vogar)

Varamaður: Svavar Grétarsson (Suðurnesjabær)

6. Tölvupóstur frá forsætisráðuneytinu dags. 13.08.2026, v. þakkir fyrir einstakt samstarf vegna almyrkva á sólu 12.08.2026.
Lagt fram.

7. Tilnefningar í Uppbyggingarsjóð Suðurnesja.
Reykjanesbær :

Aðalmenn:

Margrét Sanders

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir

Varamenn:

Rúnar Fossádal Árnason

Eva Stefánsdóttir

Suðurnesjabær

Aðalmenn

Agnes Helgadóttir 
Róbert Páll Arason

Varamenn:

Thelma Dís Eggertsdóttir

Sindri Lars Ómarsson

Sveitarfélagið Vogar

Aðalmenn

Magnús G. Jónsson Núpan

Gunnar Richter

Varamenn:

Alexandra Líf Ingþórsdóttir

Snædís Ósk Guðjónsdóttir

Grindavíkurbær

Aðalmenn

Eva Lind Matthíasdóttir
Siggeir Ævarsson

Varamenn
Gunnar Már Gunnarsson
Lóa Kristín Ólafsdóttir

8. Tilnefning í stjórn Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum.

Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum tilnefnir eftirfarandi í stjórn MSS 2026-2030.

Aðalmaður: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (Reykjanesbær)

Varamaður: Bergný Sævarsdóttir (Suðurnesjabær)

9. Tölvupóstur dags. 02.09.2026 frá GeoCamp. Beiðni um samstarf vegna Life umsóknar.

Stjórn S.S.S. felur framkvæmdastjóra að undirrita umsóknina fyrir hönd Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

10. Önnur mál.

    Fundarslit

    Fleira var ekki gert og fundi slitið kl. 9:00

    Undirskriftir

      Jónína Magnúsdóttir formaður  Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir stjórnarmaður
      Ásrún Kristinsdóttir stjórnarmaður  Björn Sæbjörnsson stjórnarmaður
      Berglind Kristinsdóttir framkvæmdastjóri og fundarritari