fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Aukaúthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja 2026 lokið

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja hefur lokið aukaúthlutun styrkja fyrir árið 2026. Alls bárust 34 umsóknir að heildarupphæð um 54 milljónir króna og samþykkti úthlutunarnefnd styrkveitingar til 25 verkefna. Heildarupphæð úthlutunar nemur 32 milljónum króna.

Í þessari aukaúthlutun var sérstök áhersla lögð á menningarviðburði, safnastarf, varðveislu menningararfs og verkefni tengd sólmyrkvanum sem verður 12. ágúst 2026. Sólmyrkvinn er einstakur viðburður sem skapar svæðinu sérstakt tækifæri til að efla fræðslu, menningu og upplifun fyrir bæði íbúa og gesti.

Í ávarpi sínu segir Logi Gunnarsson, verkefnastjóri Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja, að úthlutunin sé áþreifanleg áminning um þann kraft, sköpunargleði og frumkvæði sem búi í samfélaginu á Suðurnesjum. Hann bendir jafnframt á að valið hafi verið krefjandi en endurspegli vel þá fjölbreytni og hugmyndaauðgi sem einkennir umsækjendur á svæðinu.

„Að baki hverju verkefni liggur mikil vinna og trú á framtíð svæðisins. Reynslan hefur sýnt að fjármunir Uppbyggingarsjóðs skila sér margfalt til baka í formi lifandi menningarlífs og aukins sýnileika Suðurnesja,“ segir Logi í ávarpi sínu.

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja er hluti af Sóknaráætlun Suðurnesja og hefur það hlutverk að styðja við verkefni sem efla samfélag, menningu, nýsköpun og atvinnuþróun á svæðinu.

Styrkhöfum er óskað innilega til hamingju með úthlutunina og hlakkar SSS til að fylgjast með verkefnunum verða að veruleika á komandi misserum.