Verkefni á Suðurnesjum kynnt á EGN-ráðstefnunni í Finnlandi
Fulltrúar SSS og Reykjanes jarðvangs tóku þátt í ráðstefnu evrópska jarðvanganetsins í Finnlandi í september. Þar kynntu þau verkefni á sviði menntunar, ferðaþjónustu og samfélagsþróunar á Suðurnesjum.
Ráðstefna European Geoparks Network (EGN) fór fram í Saimaa í Finnlandi dagana 16.–18. september. Þar komu saman fulltrúar jarðvanga víðs vegar að úr Evrópu til að deila þekkingu, kynna verkefni og efla samstarf. Meðal þátttakenda frá Íslandi voru einnig fulltrúar GeoCamp og Kötlu jarðvangs.
Menntun, ferðaþjónusta og samfélag á Reykjanesi
Sigrún Svafa Ólafsdóttir kynnti uppbyggingu skólanets í samstarfi við UNESCO-jarðvang með áherslu á sjálfbærni og menntun til hnattrænnar borgaravitundar. Hún stýrði jafnframt vinnustofunni Ripples of Knowledge um útinám, samstarf og miðlun þekkingar milli jarðvanga.
Þuríður H. Aradóttir Braun flutti fjögur erindi. Hún fjallaði um hvernig sólmyrkvinn á Reykjanesi 2026 tengdi saman fræðslu, ferðaþjónustu og hagaðila á svæðinu. Þá kynnti hún verkefnin REGENERATE og Green Footprint, sem snúa að endurnýjandi ferðaþjónustu og næstu kynslóð ferðalanga.
Í erindinu From Crisis to Collective Action fjallaði Þuríður um viðbrögð við áföllum í Grindavík og samstarf til að efla seiglu samfélags og atvinnulífs.
Framlag GeoCamp og Kötlu jarðvangs
Arnbjörn Ólafsson frá GeoCamp flutti erindið From Field Sites to Professional Learning um tengsl vettvangsnáms og starfsþróunar. Sigurður Sigursveinsson frá Kötlu jarðvangi kynnti jarðfræðileið við Eyjafjallajökul.
Þátttakan var tækifæri til að miðla reynslu af verkefnum á Suðurnesjum, styrkja alþjóðleg tengsl og sækja hugmyndir sem geta nýst í áframhaldandi starfi á svæðinu.














