fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Grindavík – saman í sókn: Öflug fyrirtæki komin um borð

Spennandi tímar eru framundan í atvinnulífi Grindavíkur. Undir merkjum verkefnisins Grindavík – saman í sókn hefjast skipulegar aðgerðir sem munu styrkja samkeppnisstöðu og sjálfbærni svæðisins til framtíðar. Verkefnið hefst formlega þann 4.júní 2026 og þegar hefur frábær hópur fyrirtækja skráð sig til leiks.

Formlegt félag atvinnurekenda – nú er tækifærið

Eitt af lykilmarkmiðum verkefnisins er að stofna formlegt félag atvinnurekenda í Grindavík. Félagið mun vera vettvangur fyrir sameiginleg hagsmunamál, samstarf og samræmda stefnumótun fyrirtækja á svæðinu auk þess að tryggja að raddir atvinnulífsins heyrist þar sem það skiptir máli.

Þrír verkefnahópar – þín sérþekking á réttum stað

Þátttakendur munu starfa í þremur markvissum verkefnahópum, hvert og eitt með skýrt hlutverk og áhrif:

  • Vöruþróun og upplifun – að þróa og efla þá þjónustu og upplifun sem gestir og íbúar fá á svæðinu.
  • Samræmd ímynd og markaðssetning svæðisins – að byggja upp sameiginlega sjálfsmynd og samræmdar markaðsaðgerðir.
  • Bláa hagkerfið, nýsköpun og hringrásarhagkerfið – að greina og nýta þau tækifæri sem liggja í sjávarútvegi, nýsköpun og sjálfbærni.

Þessi fyrirtæki eru þegar meðal þátttakenda

Eftirfarandi fyrirtæki hafa þegar skráð þátttöku sína og endurspegla þann fjölbreytileika og kraft sem einkennir atvinnulífið í Grindavík:

  • Converted Water Tower
  • Neskja
  • Sæbýli ehf.
  • Bláa Lónið
  • Fisktækniskóli Íslands
  • Design of Iceland ehf.
  • Vísir ehf.
  • Sólskip ehf.
  • Hérastubbur ehf.
  • Gistihús Grindavík ehf.
  • PGV Framtíðarform ehf.
  • VIGT
  • Fishhouse
  • Discover Grindavík
  • 4×4 Fjórhjólaævintýri

Um verkefnið og mikilvægi þess fyrir Suðurnesin

Verkefnið Grindavík – saman í sókn er liður í þeirri stefnumótandi vinnu Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum að styðja við öflugt atvinnulíf, sterkt samfélag og sjálfbæra þróun á Suðurnesjum. Endurreisn Grindavíkur hefur ekki aðeins áhrif á bæjarfélagið sjálft heldur svæðið í heild, enda tengist atvinnulíf, þjónusta og samfélagsþróun sveitarfélaganna á Suðurnesjum sterkum böndum.

Mikilvægt er að skapa samfellu í stuðningi við fyrirtæki og samfélag á svæðinu á tímum breytinga og óvissu. Með verkefninu er lögð áhersla á að efla samstarf, styrkja seiglu atvinnulífsins og skapa vettvang þar sem fyrirtæki, íbúar og sveitarfélag geta unnið saman að uppbyggingu og framtíðarsýn Grindavíkur til lengri tíma.

Enn er tími til að skrá sig

Þó verkefnið hefjist formlega 4.júní tökum við enn á móti umsóknum frá fyrirtækjum sem vilja vera hluti af þessum hópi. Ef þú tilheyrir atvinnulífi Grindavíkur og vilt stuðla að uppbyggingu og framtíðarsýn svæðisins, þá er þetta þinn vettvangur.

Skráðu þig hér

Umsóknarfrestur: 28. maí 2026