Myndaleikur á Reykjanesi #góðarsögur
Ímyndarverkefnið Reykjanes – við höfum góða sögu að segja hefur sett af stað myndaleik í sumar þar sem þátttakendur taka myndir af Reykjanesi og komast þannig í pott með veglegum vinningum.
Leikreglur eru einfaldar:
- Farðu á Reykjanesið – hvert sem er!
- Taktu mynd af því sem grípur augað, af nægu er að taka.
- Merktu myndina með #godarsogur
Dómnefnd velur sigurvegara og úrslit verða kynnt á Ljósanótt, þann 3. september.
Trompverðlaun:
Fyrir þá allra ævintýraþyrstustu eru sérleg trompverðlaun. Til þess að eiga möguleika á að vinna ferð fyrir tvo til Evrópu með WOW air verða þátttakendur að taka myndir í öllum fimm sveitarfélögum á Reykjanesi, setja saman í fimm punkta Instagram hlekk og merkja #godarsogur
Sveitarfélögin eru Grindavík, Reykjanesbær, Sandgerði, Garður og Vogar.