Reykjanes kynnt á Vestnorden í Grænlandi
Markaðsstofa Reykjaness tók þátt í ferðakaupstefnunni Vestnorden í Nuuk á Grænlandi dagana 22.–23. september. Í kjölfarið var tekið á móti sjö erlendum ferðaskipuleggjendum í kynnisferð um Reykjanes, höfuðborgarsvæðið og vesturhluta Suðurlands.
Hildigunnur Marín Kristinsdóttir verkefnastjóri miðlunar hjá SSS sótti kaupstefnuna fyrir hönd Markaðsstofu Reykjaness. Þar kynnti hún fjölbreyttar upplifanir og þjónustu á svæðinu fyrir erlendum ferðasölum og ræddi tækifæri til samstarfs.
Vestnorden er árleg ferðakaupstefna Íslands, Grænlands og Færeyja. Hún leiðir saman ferðaþjónustuaðila og erlenda kaupendur og gefur þeim tækifæri til að efla tengsl og mynda ný viðskiptasambönd.
Meðal þess sem kynnt var á kaupstefnunni var Eldfjallaleiðin, The Volcanic Way, sem liggur um Reykjanes og Suðurland. Leiðin tengir saman náttúru, eldfjallalandslag og sögu svæðanna og hvetur gesti til að gefa sér tíma til að kynnast þeim.
Kynnisferð í framhaldi af kaupstefnunni
Daginn eftir Vestnorden tók við kynnisferð á Íslandi fyrir sjö ferðaskipuleggjendur frá Bandaríkjunum, Kanada, Póllandi, Austurríki og Singapúr. Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins skipulagði ferðina í samstarfi við Markaðsstofur Suðurlands og Reykjaness.
Hópurinn fór vítt og breitt um Reykjanes, höfuðborgarsvæðið og vesturhluta Suðurlands. Þannig fengu gestirnir að kynnast af eigin raun þeim stöðum, upplifunum og þjónustu sem svæðin hafa upp á að bjóða.
Ferðin heppnaðist vel og hópnum var hvarvetna tekið hlýlega. Skipuleggjendur þakka öllum sem komu að heimsókninni fyrir góðar móttökur og samstarf.
Þátttakan á Vestnorden og kynnisferðin eru liður í að efla tengsl við erlenda ferðasala og auka sýnileika Reykjaness sem áfangastaðar.





