Reykjanesskaginn á krossgötum – Þróun atvinnulífs í breyttu landslagi.
Atvinnurekendum á Suðurnesjum er boðið til opins fundar í Stapa Hljómahöll, 12. febrúar 17 – 19. Hver er staðan og hvað hefur verið gert til að bregðast við þeim áskorunum sem atvinnulífið á Suðurnesjum stendur frammi fyrir? Hver er staða orku- og vatnsmála á svæðum utan Grindavíkur? Kynningar verða frá: • HS Veitum – Páll Erland, forstjóri • HS Orka – Tómas Már Sigurðsson, forstjóri • Landsnet – Halldór Halldórsson, öryggisstjóri • Veðurstofa Íslands – Benedikt Halldórsson, fagstjóri jarðskjálftavár Atvinnurekendur á Suðurnesjum eru hvattir til að mæta. Fundarstjórar verða Berglind Kristinsdóttir og Guðmundur Gunnarsson. Fundinum verður streymt beint á Facabook síðu Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og Víkurfrétta. |