fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

54. fundur Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja

54. fundur Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja haldinn fimmtudaginn 12. júní 2025, kl. 16:00. Fundurinn er haldinn í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.

Mætt eru: Eysteinn Eyjólfsson, Björn Ingi Edvardsson, Hera Sól Harðardóttir, Karl Alvarsson, Ingþór Guðmundsson, Guðrún P. Ólafsdóttir, Magnús Stefánsson, Elísabet Bjarnadóttir, og skipulagsráðgjafar Anna Sóley Þorsteinsdóttir og Stefán Gunnar Thors, sem jafnframt ritaði fundargerð.

Forföll boðuðu: Andri Rúnar Sigurðsson, Davíð Viðarsson, Lilja Ósk Sigmarsdóttir, Einar Jón Pálsson, Jón Ben. Einarsson, Kjartan Már Kjartansson.

Eysteinn Eyjólfsson formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.  

Dagskrá:

  1. Tillaga að endurskoðuðu Svæðisskipulagi Suðurnesja.

Skipulagsráðgjafar fóru yfir uppfærða tillögu að svæðisskipulagi Suðurnesja, þar sem búið var að bregðast við ábendingum nefndarinnar sem komu annars vegar fram á 53. fundi nefndarinnar og hins vegar sem sendar voru eftir fund.

Formaður lagði fram eftirfarandi tillögu fyrir nefndina:

Svæðisskipulagsnefnd samþykkir að senda endanlega tillögu að Svæðisskipulagi Suðurnesja 2024-2040 til samþykktar sveitarstjórna á Suðurnesjum, skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar og utanríkisráðuneytisins/Landhelgisgæslunnar, skv. 3. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillaga formanns samþykkt samhljóða.

2. Beiðni um umsögn um aðalskipulagsbreytingu á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020-2035, Helguvík. Skipulagsögn eru í gáttinni https://skipulagsgatt.is/issues/2024/949.

    Formaður lagði fram eftirfarandi tillögu fyrir nefndina:

    Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja gerir ekki athugasemd við tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020-2035, sem fjallar um Helguvík.

    Tillaga samþykkt samhljóða.

    • Önnur mál.

    Engin önnur mál voru á dagskrá.

    Ekki fleiri mál færð til bókar og fundi slitið kl. 16:35.