821. fundur stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
Árið 2026, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum miðvikudaginn 11. mars, kl. 8:00 í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.
Mætt eru: Jónína Magnúsdóttir, Björn Sæbjörnsson, Ásrún Kristinsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (sat fundinn í gegnum fjarfundarkerfi) og Berglind Kristinsdóttir sem jafnframt ritaði fundargerð.
Jónína Magnúsdóttir formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn.
Dagskrá:
- Farsæld barna – staða verkefnis. Áb. Hjördís Eva Þórðardóttir verkefnastjóri.
Verkefnastjóri fór vel yfir stöðu verkefnisins og kynnti jafnframt fyrir stjórn greiningarvinnu sem er langt komin.
Stjórn þakka Hjördísi fyrir afar áhugaverða kynningu. - Drög að ársreikningi S.S.S. 2025 – Kristján Ragnarsson endurskoðandi Deloitte.
Ekki náðist að klára drögin fyrir fundinn. Málinu frestað til næsta fundar. - Atvinnuþróunarrammi – staða verkefnis. Áb. Berglind Kristinsdóttir.
Framkvæmdastjóri sagði frá stöðu verkefnis en aðilar frá sveitarfélögunum og Kadeco hittust í síðustu viku til að fara yfir stöðuna. Fundarfólk var sammála um mikilvægi þess að hittast reglulega til að fara yfir atvinnumál á svæðinu. Framkvæmdastjóri mun boða til næsta fundar þegar allir hafa sent inn umsagir/ábendingar um atvinnurammann. Stefnt er að því að fara yfir verkefnastöðu í hverju sveitarfélagi. - Samstarfsverkefni.
a. Umsókn í Lóu nýsköpunarsjóð.
b. Samstarfssamningur við Rannsóknarmiðstöð ferðamála.
Framkvæmdastjóri fylgdi málinu eftir en viðkomandi aðilar settu sig í samband við S.S.S. og óskuðu eftir þátttöku í umsókn um verkefnastyrki. - Vorfundur – drög að dagskrá.
• Atvinnuleysi, atvinnutekjur og þjónustusvæði
• Kynning frá Kölku
• Farsæld barna á Suðurnesjum
• Kynning frá verkefnastjóra almannavarnarnefndar
• Endurreisn Grindavíkur - Eigendaskipti á afskrifuðum vettvangsbíl.
Gamli vettvangsbíll Almannavarna Suðurnesja utan Grindavíkur er skráður á kennitölu S.S.S. þar sem Almannavarnir Suðurnesja utan Grindavíkur er ekki lögaðili. Bifreiðin er kominn á aldur og verður afskráð. Lögregluminjasafnið hefur óskað eftir því að fá hana til varðveislu.
Stjórn S.S.S. samþykkir þessa tilhögun samhljóða og felur verkefnastjóra Almannavarna að fylgja málinu eftir. - Önnur mál.
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum sótti um verkefnistyrki í Byggðaáætlun, C-1. Samþykktir voru tveir styrkir. Eldfjallaleiðin hlaut styrk upp á 4,5 m.kr og Grindavík – saman í sókn var styrkt um 16,5 m.kr.
Stefnt er að því að slíta Keili á næsta aðalfundi félagsins en starfsemin verður færð undir hatt Háskóla Íslands. Stjórn S.S.S. fagnar því að starfsemi Keilis lifi áfram og einnig að störfin sem fylgja kennslunni haldist áfram á Suðurnesjum.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:35.
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Jónína Magnúsdóttir
Ásrún Kristinsdóttir Björn Sæbjörnsson
Berglind Kristinsdóttir