fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

822. fundur stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum

Árið 2026, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum miðvikudaginn 15. apríl, kl. 8:00 í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.

Mætt eru: Jónína Magnúsdóttir, Björn Sæbjörnsson, Ásrún Kristinsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Berglind Kristinsdóttir sem jafnframt ritaði fundargerð.

Jónína Magnúsdóttir formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn.

Dagskrá:

  1. Erindi frá Heilbrigðisnefnd Suðurnesja dags. 26.03.2026, vegna breytinga á fyrirkomulagi eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum. Gestir: Ásmundur E. Þorkelsson framkv.st. HES, J. Trausti Jónsson heilbrigðisfulltrúi og Ingvi Hákonarson formaður HES.
    Framkvæmdastjóri H.E.S. fór yfir áhrif á breytinganna á sveitarfélögin, íbúa og fyrirtæki á Suðurnesjum. Gera má ráð fyrir því að m.a. umsagnir, ráðgjöf, vöktun lofts, vatns, strandsjávar, umgengni á lóðum og dýrahald verði eftir hjá sveitarfélögunum.

Mikill kostnaður situr eftir hjá sveitarfélögunum við þessa yfirfærslu t.d. starfslokagreiðslur, lífeyrisskuldbindingar, húsnæði og annar samningsbundinn kostnaður. Að mati framkvæmdastjóra H.E.S. er mikilvægt að kortleggja næstu skref og skoða m.a. hvort að þau verkefni sem verða eftir hjá sveitarfélögunum verða unnin þvert yfir sveitarfélagamörk.

Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram fram að næsta fundi stjórnar.

  1. Drög að ársreikningi S.S.S. 2025 – Kristján Ragnarsson endurskoðandi Deloitte.
    Kristján fór yfir ársreikning Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum vegna ársins 2025.
    • Hagnaður félagsins á árinu samkvæmt rekstrarreikningi nam kr. 983.331,-
    • Eignir félagsins í árslok samkvæmt efnahagsreikningi námu kr. 465.622.825,-
    • Bókfært eigið fé í árslok samkvæmt efnahagsreikning var kr. 27.515.872,-
    • Eiginfjárhlutfall félagsins í árslok samkvæmt efnahagsreikningi nam 5,9%
    • Fjöldi ársverka á árinu nam 11

Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum samþykkir ársreikninginn samhljóða.

  1. Atvinnu- og uppbyggingartækifæri á Suðurnesjum -hugmynd að haustviðburði.
    Í samstarfi Kadeco, SSS og SAR er lögð fram tillaga að haustviðburði sem fjallar um atvinnu-og uppbyggingartækifæri á Suðurnesjum. Tilgangur viðburðarins er að vekja athygli á svæðinu og tengingar þess við umheiminn með það að markmiði að draga fram spennandi staðsetningu fyrir fyrirtæki til að setja sig niður.
  2. Erindi frá Vinnumálastofnun, dags. 20.03.2026, beiðni um tilnefningu í vinnuhóp.
    Fram kemur í erindi frá forstjóra Vinnumálastofnunar að undanfarin ár hefur skráð atvinnuleysi á Suðurnesjum verið ívið hærra en annars staðar á landinu. Erfitt hefur reynst að snú þessari þróun við og auka atvinnuþátttöku. Í viðleiti til að bregðast við þessari stöðu hefur félags- og húsnæðismálaráðherra falið Vinnumálstofnun að koma á fót og leiða samstarfshóp sem hefur það hlutverk að greina ástæður þessarar þróunar og kom með tillögur um aðgerðir til úrbóta.

Stofnunin fer þess á leit að S.S.S. tilnefni tvo fulltrúa í samstarfshópinn.

Stjórn S.S.S. tilnefnir eftirfarandi í hópinn.
• Halldóru Fríður Þorvaldsdóttir, Reykjanesbæ
• Berglindi Kristinsdóttir, Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum

  1. Skýrsla um endurreisn atvinnumála í Grindavík.
    Skýrsla lögð fram.
  2. Beiðnir um umsagnir frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
    a. Mál nr. 568 – Stofnun atvinnuvega https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/157/568/?ltg=157&mnr=568
    b. Mál nr. 582. Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/157/582/?ltg=157&mnr=582
    c. Mál nr. 535. Innviðafélag https://www.althingi.is/altext/157/s/0912.html
    Lagt fram.
  3. Önnur mál.
    Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum stefnir á að halda aðalfund sinn laugardaginn 12. september. Fundurinn verður haldinn í Suðurnesjabæ að þessu sinni.

Upplýsingafundur um byggðaáætlun verður haldinn í dag, kl. 16 á Teams. Innviðaráðuneytið og Byggðastofnun boða til samráðsfundarins um endurskoðun byggðaáætlunar.

S.S.S. fagna framlagningu hvítbókar og þeirri stefnumótandi nálgun sem þar er sett fram, sérstaklega hvað varðar jafnt aðgengi að þjónustu, fjölbreytt atvinnulíf og sjálfbæra þróun byggða um land allt.

Hins vegar telur Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum að drögin endurspegli ekki nægilega sérstöðu Suðurnesja né þær áskoranir og tækifæri sem þar eru til staðar.

Suðurnes eru eitt hraðast vaxandi svæði landsins og gegnir lykilhlutverki í íslensku samfélagi og efnahagslífi.

Svæðið einkennist af:
• mikilli fólksfjölgun og hröðum lýðfræðilegum breytingum
• háu hlutfalli íbúa af erlendum uppruna
• sterkum tengslum við höfuðborgarsvæðið sem hluta af sameiginlegu atvinnu- og þjónustusóknarsvæði
• Keflavíkurflugvelli sem lykilinnviði fyrir landið allt
• verulegum áhrifum náttúruvár, sérstaklega í kjölfar atburða í Grindavík
Þessi staða er frábrugðin bæði hefðbundnum dreifbýlissvæðum og kjarnasvæðum höfuðborgarinnar og kallar á sértæka stefnumótun.

Sveitarfélögin á Suðurnesjum leggja áherslu á að byggðaáætlun endurspegli betur fjölbreyttar aðstæður í landinu, þar á meðal svæði sem vaxa hratt og standa frammi fyrir flóknum og samverkandi áskorunum.

Með því að taka tillit til framangreindra sjónarmiða er unnt að styrkja byggðaþróun á Suðurnesjum, bæta lífsgæði íbúa og efla samkeppnishæfni landsins í heild.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:33.

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Jónína Magnúsdóttir

Ásrún Kristinsdóttir Björn Sæbjörnsson

Berglind Kristinsdóttir