19,5% íbúa á Suðurnesjum með erlent ríkisfang
Hæsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang er á Suðurnesjum eða 19,5%.
Þetta kemur fram í útttekt Þjóðskrár Íslands þann 8. mars sl. og ræður þar miklu hraður vöxtur á Keflavíkurflugvelli þar sem fyrirtæki hafa þurft að flytja inn erlent vinnuafl. Þess má geta að Reykjanesbær hefur ráðið í stöðu verkefnastjóra fjölmenningarmála til þess að vinna að uppbyggingu málaflokksins.
Að jafnaði er hlutfallið íbúa með erlent ríkisfang um 11% en lægsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang er í sveitarfélögunum á Norðurlandi vestra eða 6,2%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa og hlutfall erlendra ríkisborgara eftir sveitafélögum.