Opið fyrir umsóknir til Hviðu fjárfestingarfélags
Hviða fjárfestingarfélag leitar að fyrirtækjum og verkefnum sem hafa möguleika á vexti á Suðurnesjum. Opið er fyrir umsóknir um fjármögnun til að styðja við uppbyggingu fyrirtækja, nýsköpun og fjölgun atvinnutækifæra á svæðinu.
Hviða, áður Eignarhaldsfélag Suðurnesja, kemur að fjármögnun með hlutafjárfjárfestingum og lánum. Félagið vinnur með bæði stórum og smáum fyrirtækjum og leggur áherslu á að efla fjölbreytni í atvinnulífi Suðurnesja.
Fyrirtækin sem Hviða hefur komið að starfa á fjölbreyttum sviðum. Meðal þeirra eru GeoSilica, Kaffi Gola, Litla brugghúsið, Matorka, Taramar, ORF Líftækni og Skipasmíðastöð Njarðvíkur.
Við mat á umsóknum er meðal annars horft til rekstrar og framtíðarhorfa fyrirtækja, fjárhagsstöðu og reynslu og þekkingar forsvarsmanna. Einnig er tekið mið af nýsköpunargildi verkefna og þýðingu þeirra fyrir uppbyggingu atvinnulífs á Suðurnesjum.
Fyrirtæki sem huga að næstu skrefum í rekstri eru hvött til að kynna sér möguleikana hjá Hviðu. Snjólaug Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins, veitir nánari upplýsingar og aðstoð við umsóknir í gegnum netfangið snjolaug@hvida.is.