fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Gerðaskóli hlýtur viðurkenningu fyrir ímyndarverkefni

Gerðaskóli hlaut á dögunum i-pad og viðurkenningu frá Heklunni, atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja fyrir besta verkefnið í samkeppni grunnskóla á Suðurnesjum sem miðaði að því að efla ímynd Suðurnesja.Öllum grunnskólum á Suðurnesjum bauðst þátttaka en verkefnið er liður í Sóknaráætlun landshluta sem felst í því að bæta ímynd svæðisins.Nemendur unnu ýmiss verkefni sem miðuðu að því að efla þekkingu á menningu, sögu og náttúru Suðurnesja.Að sögn Berglindar Kristinsdóttur framkvæmdastjóra Heklunnar er mikilvægt að efling á ímynd svæðisins hefjist heima og að ungt fólk læri að þekkja sitt byggðarlag og sé stolt af því. Þar leiki skólar stórt hlutverk.Nemendur Gerðaskóla fóru ásamt kennurum í vettvangsferð í Fjöruna við Fuglavík á Stafnesi. Ferðina nýttu þeir til þess að finna hluti í fjörunni sem nýst gætu til þess að búa til ásláttarhljóðfæri. Öllu því sem krakkarnir söfnuðu saman var komið upp á pallbíl frá sveitarfélaginu og ekið með það í skólann. Smíðakennari og tónlistarkennari unnu saman að gerð hljóðfæranna ásamt nemendunum og að því loknu voru hljóðfærin tekin í notkun og sömdu nemendur tónverk sem þau fluttu á árshátíð skólans sl. vor.Verkefni féll ennfremur vel að markmiðum Gerðaskóla þar sem endurvinnsla og nýting hluta er mikilvægur þáttur en skólinn hlotið Grænfánann.Hér má sjá verkefni nemendanna.