fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Vel heppnuð Safnahelgi

Safnahelgi á Suðurnesjum fór fram um liðna helgi þar sem sveitarfélögin á Suðurnesjum opnuðu söfn sín fyrir gestum og boðið var upp á fjölbreytta dagskrá.

Mikill fjöldi gesta sótti heim söfnin á svæðinu og var vel látið af fjölbreyttum sýningum og viðburðum en safnahelgi var haldin í ellefta sinn og hefur því fest sig í sessi.

Frábær dagskrá fyrir alla fjölskylduna

Á meðal þess sem boðið var upp á í ár var glæsilegur nýr gagnvirkur plötuspilari í Rokksafni Íslands, íbúar í Suðurnesjabæ og Vogum opnuðu söfnin sín, hægt var að skoða stærsta slökkvibíll í heimií safnageymslum Reykjanesbæjar þar sem slökkvisafn Íslands er einnig til húsa og í Grindavík var hægt að skoða muni sem tengast ströndum á svæðinu. Auk þess var nóg um að vera fyrir börnin, m.a. upplestur úr Veröld Vættanna sem kynna eiga Reykjanes Global Geopark, ævintýraveröld í Þekkingarsetrinu og föndursmiðja og ratleikur í Duus-húsum.

Safnahelgi á Suðurnesjum er sameiginlegt verkefni allra safna, sýninga og setra á Suðurnesjum sem liður í því að kynna menningu á heilu landssvæði fyrir landsmönnum öllum og hefur það tekist vel með aukinni aðsókn árlega auk þess sem Safnahelgi hefur fest sig í sessi í svo langan tíma e

ins og raun ber vitni.