389. fundur SSS 13. október 1995
Árið 1995 er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum föstudaginn 13. október 1995 kl. 11.30 í veitingahúsinu við Bláa lónið.
Mætt eru: Hallgrímur Bogason, Sigurður Jónsson, Kristján Gunnarsson, Björk Guðjónsdóttir, Óskar Gunnarsson, Jón Gunnarsson, Drífa Sigfúsdóttir, Guðjón Guðmundsson og Jóhanna M. Einarsdóttir ritari.
Dagskrá:
1. Ákveðið að gefa út fjórblöðung um n.k. aðalfund og munu Suðurnesjafréttir sjá um útgáfuna.
2. Bréf dags. 3/10 1995 frá Skósuð þar sem stjórn S.S.S. er boðið að senda fulltrúa á fund þar sem fjallað er um málefni fatlaðra nemenda að loknum grunnskóla. Sigurður Jónsson, Gerðahreppi mun sitja fundinn.
3. Kynnt var breytingartillaga í framhaldi af viðræðum við bæjarráð Grindavíkur við 5. grein samþykkta S.S.S. Samþykkt að leggja breytingartillöguna fram á aðalfundi til samþykktar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12.50.