fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

594. fundur SSS 5. desember 2008

Árið 2008, er fundur haldinn í  stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum föstudaginn
5. desember kl. 08.15 á Iðavöllum 12, Reykjanesbæ.

Mætt eru:  Garðar K. Vilhjálmsson, Oddný Harðardóttir,  Óskar Gunnarsson, Birgir Örn Ólafsson,  Guðjón Guðmundsson  og Jóhanna M. Einarsdóttir ritari.

Fulltrúar Grindavíkur boðuðu forföll.

Dagskrá:

 

1. Fjárhagsáætlanir sameiginlega rekinna stofnana sveitarfélaganna á Suðurnesjum fyrir 2009. Guðjón Guðmundsson framkvæmdastjóri SSS kynnti tillögur Fjárhagsnefndar að fjárhagsáætlunum sameiginlega rekinna stofnana fyrir árið 2009 ásamt fundargerðum Fjárhagsnefndar 219. – 221.  Fundargerðir Fjárhagsnefndar SSS nr. 219 til 221  samþykktar.  Stjórnin samþykkir tillögurnar fyrir sitt leiti og vísar tillögunum til afgreiðslu sveitarstjórnanna. 

2. Fundargerð Þjónustuhóps aldraðra frá 18. nóv. ´08.  Lögð fram og samþykkt.

3.    Bréf dags. 3/11 ´08 frá Grindavíkurbæ þar sem áréttað er það sem fram kemur í ályktun  um framhaldsskóla á Suðurnesjum á 31. aðalfundi SSS “Fundurinn styður áform um framhaldsskóla í Grindavík”. Lagt fram.

4. Bréf dags. 4/11 ´08 frá Samgöngunefnd  Alþingis ásamt frumvarpi til laga um almenningssamgöngur, 44. mál, heildarlög.  Lagt fram.

5. Bréf dags. 5/11 ´08 frá Efnahags- og skattanefnd Alþingis ásamt frumvarpi til laga um tekjuskatt, 41. mál, ferðakostnaður.  Lagt fram.

6. Sameiginleg mál.
Rætt um  samninga um almenningssamgöngur á Suðurnesjum.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9.45.