fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

792. fundur stjórnar S.S.S

Árið 2023, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum miðvikudaginn 30. ágúst, kl. 8:00 í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.

Mætt eru: Friðjón Einarsson, Anton Kristinn Guðmundsson, Björn G. Sæbjörnsson, Sverrir Auðunsson og Berglind Kristinsdóttir sem jafnframt ritaði fundargerð.

Friðjón Einarsson formaður stjórnar setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn.
Dagskrá:

  1. Undirbúningur aðalfundar S.S.S. 2023.
    Stjórn S.S.S. vann drög að dagskrá en aðalfundur S.S.S. verður haldinn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, laugardaginn 14.október. Framkvæmdastjóra falið að vinna áfram að dagskrá fundarins fram að næsta fundi stjórnar.
  2. Fjárhagsáætlun S.S.S. 2023 – undirbúningur.
    Framkvæmdastjóra falið að vinna áætlunina áfram í samræmi við umræður stjórnar og leggja fram á næsta stjórnarfundi. Unnið er að tillögum að skipulagsbreytingum á starfsemi S.S.S. og verða þær kynntar á aðalfundi S.S.S. Fjárhagsáætlun mun því taka mið af þeim, m.a. vegna breytinga á starfsmannahaldi.
  3. Tölvupóstur dags. 21.08.2023 frá Innviðaráðuneytinu vegna máls. nr. 151/2023, drög að reglugerð um íbúakosningu sveitarfélaga.
    Lagt fram til kynningar.
  4. Afrit af umsókn um styrk vegna svæðisbundins samráðs gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Suðurnesjum og til stofnunar á Velferðarmiðstöð Suðurnesja.
    Lagt fram til kynningar.
  5. Önnur mál.
    Áfangastaðaáætlun Reykjanes lögð fram. Stjórn S.S.S. samþykkir áætlunina fyrir sitt leiti.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:35.

Friðjón Einarsson Björn G. Sæbjörnsson Anton K. Guðmundsson

Sverrir Auðunsson Berglind Kristinsdóttir