791. fundur stjórnar S.S.S.
Árið 2023, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum miðvikudaginn 30. ágúst, kl. 8:00 í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.
Mætt eru: Friðjón Einarsson, Anton Kristinn Guðmundsson, Guðmann Lúðvíksson, Sverrir Auðunsson og Berglind Kristinsdóttir sem jafnframt ritaði fundargerð.
Friðjón Einarsson formaður stjórnar setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn.
Dagskrá:
- Undirbúningur aðalfundar S.S.S. 2023.
Stjórn S.S.S. lagði drög að dagskrá en aðalfundur S.S.S. verður haldinn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, laugardaginn 14.október. - Fjárhagsáætlun S.S.S. 2023 – undirbúningur.
Framkvæmdastjóra falið að vinna áætlunina áfram í samræmi við umræðu stjórnar og leggja fram á næsta stjórnarfundi. - Tölvupóstur dags. 21.08.2023 frá Innviðaráðuneytinu vegna máls. nr. 151/2023, drög að reglugerð um íbúakosningu sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar. - Afrit af umsókn um styrk vegna svæðisbundins samráðs gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Suðurnesjum og til stofnunar á Velferðarmiðstöð Suðurnesja.
Lagt fram til kynningar. - Önnur mál.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:40.
Friðjón Einarsson Guðmann Lúðvíksson Anton K. Guðmundsson
Sverrir Auðunsson Berglind Krisitnsdóttir