fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Opnun þjónustumiðstöðvar í Tollhúsinu í Reykjavík miðvikudaginn 15. nóvember vegna jarðhræringanna á Reykjanesi.

Ríkislögreglustjóri, í samstarfi við Rauða krossinn og Grindavíkurbæ, mun opna þjónustumiðstöð á morgun miðvikudaginn 15. nóvember kl. 12-18. Þjónustumiðstöðin er til húsa í Tollhúsinu, Tryggvagötu 19 og er opin á virkum dögum frá kl. 10-18.
Verkefni þjónustumiðstöðvar felast í stuðningi við íbúa Grindavíkurbæjar og aðra sem á einhvern hátt hafa orðið fyrir áhrifum jarðhræringanna á Reykjanesi. Þar er boðið upp á samveru og kaffitár og leikhorn fyrir börn. Rauði krossinn býður upp á sálfélagslegan stuðning og félagsleg ráðgjöf verður í boði á vegum starfsfólks Grindavíkurbæjar. Boðið verður upp á upplýsingagjöf, fræðslu og ráðgjöf af ýmsu tagi og mun sá stuðningur verða útfærður í samræmi við þarfir og óskir íbúa Grindavíkurbæjar.

Fjölmiðlar eru vinsamlegast beðnir um að sýna nærgætni og heimsækja ekki þjónustumiðstöðina eða dvelja fyrir utan inngang hennar. Fjölmiðlum verður boðið í heimsókn von bráðar og þeim kynnt starfsemi stöðvarinnar.

Grindvíkingar og aðrir íbúar á Reykjanesi eru hvattir til að nýta sér þjónustumiðstöðina með öll þau erindi sem á þeim hvíla varðandi atburði undanfarna daga. Heitt er á könnunni fyrir þau sem hafa tök á að mæta í Tollhúsið í Reykjavík en einnig er hægt að hafa samband í síma 855 2787 og í netfangið fyrirspurnir@almannavarnir.is