Fundi frestað vegna slæmrar veðurspár -Reykjanesskaginn á krossgötum
Tekin hefur verið ákvörðun um að fresta fundinum sem átti að vera í dag, miðvikudaginn 31. janúar kl. 17:00 vegna slæmrar veðurspár. Ný dagsetning verður send út á morgun.
Hver er staðan og hvað hefur verið gert til að bregðast við þeim áskorunum sem atvinnulíf á Suðurnesjum stendur frammi fyrir?
Hver er staða orku- og vatnsmála á svæðum utan Grindavíkur?
Reykjanesskaginn á krossgötum, þróun atvinnulífs í breyttu landslagi er yfirskrift opins fundar sem atvinnurekendum á Suðurnesjum er boðið til í Stapa, Hljómahöll miðvikudaginn 31. janúar kl. 17 – 19:00.
Kynningar verða frá:
- HS veitum – Páll Erland, forstjóri
- HS Orka – Tómas Már Sigurðsson, forstjóri
- Landsnet – Halldór Halldórsson, öryggisstjóri
- Veðurstofa Íslands – Benedikt Halldórsson, fagstjóri Jarðskjálftavár
Atvinnurekendur á á Suðurnesjum eru hvattir til að mæta.
Fundarstjórar verða Berglind Kristinsdóttir og Guðmundur Gunnarsson.
Fundinum verður streymt beint á Facabook síðu Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og Víkurfrétta.
![](https://sss.is/wp-content/uploads/2024/01/SSS-Reykjanesskaginn-krosgotum_255x185_x139-1024x747.jpg)