fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

53. fundur Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja

53. fundur Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja haldinn fimmtudaginn 8. maí 2025, kl. 16:00. Fundurinn er haldinn í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.

Mætt eru: Eysteinn Eyjólfsson, Einar Jón Pálsson, Gunnar K. Ottósson, Lilja Sigmarsdóttir, Andri Rúnar Sigurðsson, Jón B. Einarsson, Björn Ingi Edvardsson, Hera Sól Harðardóttir, Karl Alvarsson, Guðrún P. Ólafsdóttir, Magnús Stefánsson, og Stefán Gunnar Thors sem jafnframt ritaði fundargerð.

Forföll boðuðu þau: Kjartan Már Kjartansson og Berglind Kristinsdóttir.

Eysteinn Eyjólfsson formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.  

Dagskrá:

  1. Tölvupóstur dags. 11.04.2025 frá Isavia v. skipunar í Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja.

Nýr formaður skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar, Karl Alvarsson, tekur sæti í svæðisskipulagsnefndinni. Karl er boðinn velkominn í nefndina.

2. Tillaga að endurskoðuðu Svæðisskipulagi Suðurnesja.

    Skipulagsráðgjafar fóru yfir uppfærða tillögu að svæðisskipulagi Suðurnesja, þar sem búið var að bregðast við umsögnum sem fram komu um vinnslutillöguna. Jafnframt var tillaga uppfærð m.t.t. ábendinga sem bárust frá fulltrúum í nefndinni.

    Á fundinum var umræða um uppfærslur og lagðar til breytingar, sem ráðgjafar vinna með. Umræðan var m.a. um vatnsból, orkumál, ábyrgð á ýmsum aðgerðum, þjóðhagslega mikilvæga innviði, samfélagsmál og ýmsar leiðréttingar.

    Ákveðið að ráðgjafar uppfæri tillögu að greinargerð m.t.t. umræðu á fundinum og sendi til nefndarfólks, þar sem uppfærsla og nýjustu breytingar eru merktar.

    Formaður lagði til að nefndin hafi 2 vikur til að fara yfir uppfærða tillögu.  Á næsta fundi nefndarinnar, 12. júní nk., verði tillagan lögð fram til afgreiðslu, skv. 3. mgr. 23. gr. skipulagslaga og í kjölfarið er tillagan og afgreiðslan lögð fyrir sveitarstjórnir, Landhelgisgæsluna og skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar til samþykktar. Samkvæmt þessu er stefnt að formlegri kynningu á Svæðisskipulagi Suðurnesja 2024-2040 í ágúst/september.

    Tillaga formanns samþykkt samhljóða.

    Formaður lagði fram tillögu um að svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja sendi ekki inn umsögn um kerfisáætlun 2025-2034, þar sem ekki er þörf á því miðað við viðfangsefni kerfisáætlunar og framkvæmdaáætlun. Engu að síður er mikilvægt að í næstu kerfisáætlun verði tekið til skoðunar framtíðaruppbyggingu flutningskerfis m.t.t. hringtenginga og raforkuöryggis Suðurnesja.

    Tillaga samþykkt samhljóða.

    • Önnur mál.

    Ekki fleiri mál færð til bókar og fundi slitið kl. 17:40.