Opið fyrir tilnefningar: Landstólpinn 2026
Byggðastofnun hefur opnað fyrir innsendingu tilnefninga til Landstólpans 2026, samfélagsviðurkenningar sem veitt er árlega á ársfundi stofnunarinnar.
Landstólpinn er viðurkenning sem Byggdastofnun veitir árlega á ársfundi sínum. Um er að ræða hvatningarverðlauns til einstaklinga, fyrirtækja, hópa eða verkefna sem vakið hafa athygli á byggðamálum, styrkt samfélög í landsbyggðunum eða stuðlað að framgangi málefna landsbyggðanna, ýmist i heild eða innan tiltekins byggðarlags, s.s. innan nýsköpunar, byggðaþróunar, atvinnuþróunar, sjálfbærni eða menningar.
Hverjir geta verið tilnefndir?
Dómnefnd velur úr þeim tillögum sem berast og mikilvægt er að rökstuðningur fylgi tilnefningu. Hafa má í huga hvort viðkomandi hafi t.d.:
- Stuðlað að jákvæðri og sterkri ímynd landsbyggðanna eða tiltekins svæðis
- Vakið athygli og aukið umfjöllun um ákveðið svæði eða málefni
- Styrkt nærumhverfi með aukinni samstöðu, atvinnu, afþreyingu, menningu, þjónustu eða verðmætasköpun
- Aukið virkni íbúa og fengið þá til beinnar þátttöku í verkefnum
- Stuðla að jákvæðum áhrifum efnahags-, samfélags- og/eða umhverfislegra þátta
Viðurkenning og verðlaun
Viðurkenningunni fylgir listmunur hannaður af íslenskum listamanni auk verðlaunafjár að upphæð 1.000.000 kr.
Skilafrestur
Frestur til að skila inn tilnefningum rennur út föstudaginn 27. febrúar 2026.
Tilnefningum skal skila inn á netfangið: landstolpinn@byggdastofnun.is
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veita: Helga Harðardóttir og Andri Þór Árnason, í síma 455-5400.
Senda inn tilnefningu