fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Ímynd Reykjaness

Sóknaráætlun 2025-3

Markmið verkefnisins er að styrkja ímynd Reykjaness með því að efla jákvæða umfjöllun um svæðið, auka stolt íbúa og dýpka þekkingu á menningu, náttúru og samfélagi. Vinna þarf upp traust til atvinnuuppbyggingar á svæðinu í kjölfar á eldsumbrota í Grindavík. Unnið verður að stefnumótun og greiningu á stöðu svæðisins með sjálfbærni að leiðarljósi.

  • Greining á stöðu ímyndar Reykjaness og skilaboðastefnu, þar sem markhópagreining og markaðsrannsóknir verða nýttar til að efla trúverðugleika og skilvirkni aðgerða.
  • Góðar sögur sagðar af heimamönnum og atvinnulífi
  • Þróun og gerð fræðsluefnis fyrir íbúa, fjárfesta og ferðamenn með áherslu á menningu, náttúru og sjálfbæra nýtingu svæðisins.
  • Virk markaðssetningu á stafrænum miðlum og í fjölmiðlum með áherslu á að koma jákvæðum sögum af Reykjanesi á framfæri.
  • Laða að fjárfestingu og styðja við atvinnulíf á svæðinu, með því að efla samkeppnishæfni fyrirtækja og stuðla að nýsköpun í rekstri og ferðaþjónustu.

Sjálfbærni og tenging við efnahag, samfélag, atvinnulíf og umhverfi:

  • Efnahagur: Verkefnið styður við efnahagslega sjálfbærni með því að efla ímynd svæðisins sem traust búsetu- og atvinnusvæði sem laðar að fjárfestingar og atvinnu.
  • Samfélag: Með aukinni þekkingu á menningu og sögu svæðisins styrkist samfélagslegt sjálfstraust og samkennd, sem hefur jákvæð áhrif á íbúalýðheilsu og samfélagsþróun.
  • Atvinnulíf: Verkefnið stuðlar að að aukinni nýsköpun og fjölbreytileika í atvinnulífinu.

Umhverfi: Verkefnið tekur mið af sjálfbærnistefnu svæðisins og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna með áherslu á ábyrga markaðssetningu sem dregur fram náttúruvernd, umhverfisvæna ferðaþjónustu og sjálfbæra þróun.