Myrkurferðaþjónusta á Reykjanesi
Sóknaráætlun 2025-4

Markmið verkefnisins er að þróa Reykjanes sem leiðandi áfangastað fyrir myrkurferðaþjónustu, með áherslu á stjörnuskoðun, norðurljósaferðir og Almyrkva 2026. Verkefnið byggir á sjálfbærni og nærandi ferðaþjónustu, í sátt við náttúru, samfélag og atvinnulíf.
Myrkurferðaþjónusta er einstakt tækifæri til að laða ferðamenn til Reykjaness utan háannatíma með upplifun tengda stjörnufræði, myrkri og kyrrð. Verkefnið miðar að því að þróa ferðaleiðir, aðstöðu og vöruþróun fyrir myrkurferðir, með sérstakri áherslu á Almyrkvann 2026 sem einstakt tækifæri til kynningar.
Verkefnið felur í sér:
- Stjörnuskoðun og norðurljósaferðir – Þróun nýrra ferðaleiða og upplifunarstaða.
- Hugmyndavinna og þróun áningastaða – Betri aðstaða fyrir gesti í myrkurferðum.
- Vöruþróun og fræðsluefni – Þróun á fræðslu- og markaðsefni fyrir ferðamenn og ferðaþjónustuaðila.
- Sjálfbærni og nærandi ferðaþjónusta – Verkefnið styður við stefnu um sjálfbærni og eflingu hágæða upplifunar í ferðaþjónustu.