Nærandi ferðaþjónusta á Reykjanesi
Sóknaráætlun 2025-5

Markmið verkefnisins er Að þróa og innleiða sjálfbæra nálgun í ferðaþjónustu á Reykjanesi sem stuðlar að náttúruvernd, betri upplifun ferðamanna, jákvæðum hagrænum áhrifum og sterkari samfélagslegum ávinningi.
Verkefnið miðar að því að styrkja áfangastaðinn Reykjanes með áherslu á sjálfbærni og nærandi ferðaþjónustu. Það byggir á stefnumótun og aðgerðum sem tryggja jafnvægi milli ferðaþjónustu, náttúruverndar og samfélagslegrar þróunar. Helstu áherslur verkefnisins eru:
- Uppfærsla á hluta áfangastaðaáætlunar með hliðsjón af breyttum forsendum vegna lifandi náttúruvá.
- Ný markaðs- og markhópagreining sem tekur mið af sjálfbærum ferðavenjum og ábyrgri upplifun.
- Forgangslisti ferðamannastaða uppfærður í takt við nýjar áherslur í sjálfbærni.
- Þróun eftirlitskerfis/stöðugreiningar fyrir ferðamannastaði á Reykjanesi.
- Samgöngumál skilgreind með sjálfbærni í huga, m.a. hvatning til vistvænni samgangna.
- Þróun kynningarefnis og leiðir til upplýsingamiðlunar með áherslu á nærandi ferðaþjónustu, staðbundið og á vefmiðlum.
- Stofnun Markaðsráðs Reykjaness, sem leiðir stefnumótun í markaðsmálum svæðisins.
- Stofnun Sjálfbærniráðs, sem vinnur að framkvæmd og eftirfylgni sjálfbærnimarkmiða áfangastaðarins.
- Innleiðing ferla í ferðaþjónustuverkefnum sem tryggja samræmi við sjálfbærni og nærandi ferðaþjónustu.