fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Nærandi samstarf – Samvinna fyrir sjálfbæra framtíð á Reykjanesi

Sóknaráætlun 2025-6

Markmið verkefnisins er að efla samstarf fyrirtækja á Reykjanesi og Suðurnesjum innan ferðaþjónustu og tengdra greina með skipulögðum samningum og samstarfsvettvangi sem styður sjálfbæra þróun, vöruþróun, nýsköpun og samfélagslega ábyrgð.

Verkefnið miðar að því að formgera og þróa samstarf á milli Markaðsstofu Reykjaness, Reykjanes Geopark og Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Markmiðið er að fyrirtæki á svæðinu geti orðið virkir samstarfsaðilar í fjölbreyttum verkefnum sem snúa að ferðaþjónustu, umhverfismálum, byggðaþróun, nýsköpun og fjárfestingum.

Unnið verður að gerð samstarfssamninga sem stuðla að aukinni verðmætasköpun og samkeppnishæfni svæðisins. Lögð verður áhersla á sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð, þar sem fyrirtæki skuldbinda sig til að vinna að lausnum sem stuðla að sjálfbærri ferðaþjónustu og uppbyggingu svæðisins.

Samstarfið verður formfest með siðareglum, samfélagssáttmála og sjálfbærnistefnu sem fyrirtæki skuldbinda sig til að fylgja. Í framhaldi verður hugað að innleiðingu á CSI-vísi fyrir sjálfbæra ferðaþjónustu.

Til að tryggja samstarfið og þróun þess verða haldnir reglulegir samstarfsaðilafundir þar sem aðilum gefst tækifæri á að þróa og hafa áhrif á áherslur verkefna hverju sinni og frekari styrkingar á samstarfsvettvanginum.