Öflug samvinna og innblástur á UNESCO skóla menntabúðum Reykjanes jarðvangs

Reykjanes jarðvangur stóð fyrir Menntabúðum með UNESCO skóla þema sem fóru fram í Gerðaskóla í Garði fyrr í vikunni. Viðburðurinn heppnaðist afar vel, þangað mættu rúmlega 100 gestir frá 15 skólum og kynntu sér fjölbreytt verkefni sem tengjast átthagafræði, útinámi, vísindum, mannréttindum, sjálfbærni og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Viðburðurinn var opinn öllum, settur upp sem kynningarbásar og fyrirlestur í lokin. Sú uppsetning gaf þátttakendum tækifæri til að ganga á milli, spyrja spurninga og eiga samtal við annað skólafólk. Básarnir voru um 13 talsins, fjölbreyttar kynningar frá leik-, grunn- og framhaldsskólum á svæðinu, en einnig voru aðrir aðilar með bása; Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Landvernd, Reykjanes jarðvangur og Þekkingarsetur Suðurnesja.
„Þátttakan var frábær og andrúmsloftið afar jákvætt. Svona menntabúðir eru liður í að skapa sameiginlegan vettvang þar sem skólafólk getur hist, átt samtal og deilt reynslu og þekkingu þvert á skóla, skólastig og sveitarfélög. Þessi fyrsti viðburður fór langt fram úr mínum björtustu vonum“ segir Sigrún Svafa Ólafsdóttir, verkefnastjóri fræðslumála hjá Reykjanes jarðvangi. „Það sést svo vel hvað skólarnir okkar eru að gera marga ólíka, spennandi hluti – saman erum við sterkari, við erum bara rétt að byrja”.
Að lokum hélt Sævar Helgi Bragason fróðlegt og skemmtilegt erindi þar sem hann sýndi hvernig fjalla má um alheiminn og almyrkva á sólu í skólastarfi. Hann fjallaði jafnframt um almyrkvann á sólu þann 12. ágúst 2026, hvers má vænta af fyrirbærinu og þau tækifæri sem það skapar fyrir Reykjanesið, bæði í fræðslu og miðlun til almennings. Erindið vakti mikla ánægju og skapaði líflegar umræður meðal gesta.
Menntabúðirnar undirstrika þann mikla kraft sem býr í skólafólki innan Reykjanes jarðvangs og þau tækifæri sem felast í því að vinna saman sem ein heild í átt að sjálfbærri þróun. Þarna sást greinilega hvernig UNESCO skóla samstarfið getur styrkt tengsl milli skóla og aukið tenginguna við umhverfið, náttúruna og þar með við jarðvanginn.





